A sneak peak into my head

Little missys brain - virkar best í Firefox, IE er verkfæri djöfulsins!

18.02.2009 09:51:35 / Una

Stjörnuspáin mín í dag.

Í fréttaleitinni minni í dag rak ég augun í stjörnuspána mína. Fannst þetta vera ágætis speki og smelli henni því hérna upp.;)

"Steingeit: Þér finnst þú svöl félagsvera. Leggðu grunninn nú að breytingum á umhverfi þínu. Flýttu þér að læra að skilja í milli þess sem skiptir máli og hins, sem er hrein tímasóun."

Annars er það í fréttum að litla þvera og þrjóska ég er komin á facebook. Jábbs, ég er ekki lengur í hópi þess fólks sem lifir góðu lífi án facebook - þó svo að ég geti nú s.s. ekkert sagt að líf mitt hafi breyst eitthvað stórkostlega eftir skráningu.:$

Já svo mun fljótlega verða hérna í Stykkishólmi svona local Idol if you will á milli vinnustaða, kallað Söngvaseiður. Yours truly er skráð til þáttöku fyrir ráðhúsið :haha:. Nú er það bara að fara að ákveða lag og svona, æfingar byrja í næstu viku. Svo ef einhver er með tillögu þá eru þær vel þegarnar :). En jæja... ætla nú að fara að halda áfram að gera eitthvað í vinnunni.

» 6 hafa sagt sína skoðun

04.02.2009 08:48:50 / Una

Gróf misbeiting valds - ekki fyrir viðkvæmar sálir!


Var að rúnta yfir fréttir og fann eina þar sem Barack Obama segir að Jessica Simpson sé feit... ok - það er nú s.s. ekkert sem að viðkvæmar sálir ráða ekki við ;). Hinsvegar leiddi þetta mig inn á youtube þar sem ég rakst á videoið fyrir neðan sem er um frétt þar sem lögreglan gerði vægast sagt harkalega  nektarleit á konu í fangelsi :whut:. Þetta er hrein og klár nauðgun og gróf misbeiting á valdi 8|. Mér varð hálf óglatt að horfa á þetta - en fannst ég verða að setja þetta hérna.... svo ef þú treystir þér til - þá er videoið hérna.

» 2 hafa sagt sína skoðun

02.02.2009 09:10:05 / Una

Staldraðu við og skoðaðu stjörnurnar!

Þessi vika leggst voðalega vel í mig. Í morgun rölti ég með krakkana á leikskólann og á leiðinni benti Alexía mér á stjörnurnar (þetta er kosturinn við að búa í minni bæjum sem eru ekki með alveg eins mikla ljósmengun og stærri plássin). En það er alveg yndislegt hvað það fylgdi því mikil hugarró að líta upp og horfa á stjörnurnar sem eru enn jafn heillandi og dulmagnaðar og þær voru þegar ég var lítil. :d Þorvaldur var reyndar ekki eins hrifinn af þessu - sagðist hafa séð þær í herberginu sínu í nótt, aðeins lengur að komast í gang á morgnanna :haha:


Þegar ég var að leita að mynd á netinu til að fylgja með þessarri færslu - þá fann ég enga sem að mér fannst gefa vetrarhimninum nógu góð skil... svo þessi verður bara að duga :s

Allaveganna... þegar herðir að í öllum þessum kreppum og í þessu "ástandi", þegar fólk er að drepa hvort annað úti í heimi... staldraðu aðeins við í rökkrinu og horfðu á stjörnurnar... það hreinsar sálina if you aks me;)

Jæja... nóg af þessarri mánudagsspeki - back to work :$

» 2 hafa sagt sína skoðun

06.01.2009 14:21:39 / Una

Jesús Guð Dýrlingur kemur til höfuðborgarinnar!

Jæja þá er komið að því. Núna ætlum við úti á landi liðið að sýna þessu malbiksfólki hvað alvöru menning er :d

Hehe.. já allaveganna. Þá er leikfélagið Grímnir í Stykkishólmi að fara að sýna Jesus Guð Dýrlingur í félagsheimilinu á Seltjarnarnesi laugardaginn 10. janúar klukkan 19:00 og 22:00 sem og klukkan 14:00 á sunnudeginum 11. janúar.
Miðaverð er 2.500.- og má panta miða í síma 894-7900 <- ath breytt símanúmer!

Nánari upplýsingar og gagnrýni á sýninguna má finna í þessarri bloggfærslu.

Vonast til þess að sem flestir sjái sér fært um að kíkja - og endilega látið sem flesta vita!


» 4 hafa sagt sína skoðun

18.12.2008 08:58:18 / Una

Snilldar hugsun foreldris.

Sá alveg snilldar frétt á mbl í morgun um föður sem að refsaði syni sínum fyrir skemmdarverk með þeim hætti að stráksi mun svo sannarlega hugsa sig tvisvar um í framtíðinni :lol:



Hérna er fréttin af vef press-telegram þar sem er talað við þá feðga ásamt fólki af götunni sem varð vitni af þessu.
Ég veit ekki með ykkur - en mér finnst svona lagað í góðu lagi, hann þurfti s.s. að ganga um með þetta skilti í 5 tíma að mig minnir ásamt því að vinna í samfélagsþjónustu og eitthvað álíka. Stráksi var að hugsa um að vera með í gengi, en hann er hættur við - enda engin leið að vita hvaða afleiðingar það hefði haft fyrir hann :haha: Börn eiga að læra að gjörðir þeirra hafa afleiðingar!


Svo var einnig á mbl, frétt um mann sem hefði mátt kenna að sjá um gæludýr.... lyktin hlýtur að hafa verið orðin rosaleg! Mig hefur ekki langað til að eiga páfagauk hingað til - og eftir að hafa lesið þetta, þá langar mér það enn síður :$


» 2 hafa sagt sína skoðun

16.12.2008 08:33:01 / Una

Verkfæri djöfulsins...

Jubbs... ég segi það og skrifa: Internet explorer er verkfæri djöfulsins. Sjáiði bara þessa frétt!


Ég var löngu búin að heyra um það að Internet explorer væri með fullt af smugum fyrir "óprúttna aðila". Sjálf nota ég firefox og er alveg hæstánægð með minn grip :haha:

 

En já... korter í jól, allt að verða klárt á þessum bænum - tökum trúlega stuttann rúnt í bæinn til að keyra út nokkrar gjafir og kaupa það litla sem kaupa þarf ;)


» 3 hafa sagt sína skoðun

08.12.2008 09:10:38 / Una

Sorgleg örlög einstæðings


frétt um mann sem hafði verið látinn í íbúðinni sinni í þónokkurn tíma á dv.is í dag. Í fyrastalagi hefur aðkoman hefur verið agaleg bara með tilliti til lyktar - þar sem tekið er fram að lyktin frá íbúðinni hafi verið orðin "megn", þá hefur hún verið margfallt rosalegri innan íbúðarinnar. En svo er það hinn vinkillinn... það virðist enginn hafa saknað hans.... sást síðast til hans í ágúst! :|
Þegar ég var yngri og ekki sjálfri mér nóg, þá var þetta það sem ég óttaðist mest, að enda uppi ein og afskiptalaus... er komin yfir það núna :) Er með kallinn og krakkana í litla parhúsinu úti á landi ásamt því að eiga góða vini að sem að væru vísir til að athuga hvort ég væri dauð ef ekkert myndi heyrast frá mér í einhvern tíma - held að það myndi allaveganna gerast á innan við 4 mánuðum eins og raunin hefur kannski verið í ofangreindu dæmi :$


» 2 hafa sagt sína skoðun

02.12.2008 09:22:02 / Una

Æi hvaða vitleysa er þetta nú í baunanum!

Rakst á frétt þess efnis á vísi í dag að það sé bauni sem að vill banna jólasveina. :whut: Hvað er þetta, má maður ekkert lengur á þessu skeri? :s
Hann talar um að "jólasveinanar beri vott um djöfladýrkun og því séu þeir í raun tákn um það stríð sem djöfullinn herji gegn jólahátíðinni." ... ég man að ég heyrði álíka rök einhverja nóttina á Omega árið 2001 þegar ég var andvaka - "þetta er ekki jólasveinar, heldur jóladjöflar" 8| ... mér fannst þetta fyndið og fáránlegt þá og finnst þetta fyndið og fáránlegt núna.
Það er mörgum sem finnst Guð og allt í kringum hann fáránlegt, en er samt ekki að skemma það fyrir öðrum - þannig mætti það líka vera með jólasveinanna... ef þér líkar þetta ekki - þá má það bara vera þitt mál.


Þessir eru alveg örugglega náskyldir...

Alveg nóg að þjóðinn sé búinn að tapa ærunni, krónunni, vinnunni og ég veit ekki hvað - við hljótum nú að mega eiga okkar jólasveina út af fyrir okkur... þetta eru jú þegar öllu eru á botnin hvolft fyrstu íslensku hryðjuverkamennirnir :haha:


» 0 hafa sagt sína skoðun

28.11.2008 09:42:20 / Una

Búin að skreyta töluvert heima.

Jamms þegar svona árferðir er í gangi - þá er bara um að gera að skreyta snemma. Við erum komin með ljós fyrir utan og í nokkra glugga, kransinn er klár og farið er að setja jóla hitt og þetta um húsið. :p

Næsta ár ætlum við að færa út kvíarnar og gera eitthvað í líkingu við hér að neðan - enda ætti að vera komið bullandi góðæri þá aftur, ekki satt :haha:








Þetta hús er eeeendalaust sniðugt...Ef þú vilt skoða meira þá finnurðu það hérna. :p

Ég veit ekki með ykkur - en ég kemst bara í ágætis jólaskap við þetta :haha:

» 4 hafa sagt sína skoðun

27.11.2008 09:20:49 / Una

Hvað fæ ég þá fyrir Steik og rauðvín?


Það má fá eflaust fá góða helgi fyrir þetta

Í dag má sjá frétt á vísi.is með heitinu "Unglingar telja eðlilegt að fá greitt með hamborgurum fyrir kynlíf." Fyrst var ég voða hneiksluð og sjokkeruð - en svo hugsaði ég mig nú aðeins um og áttaði mig á því að þetta er ekkert nýtt. Eini munurinn er að þetta er farið úr áfengi niður í mat - sveltur enginn á meðan :lol:
 
Ég hélt því nefnilega fram á tímabili að margar stelpur væru að selja sig fyrir að fá í glas - sem og margir karlmenn að kaupa þær þannig. Því að mínum augum er lítill munur á að einhver borgi þér í beinhörðum peningum fyrir kynlíf eða þá að sá hinn sami haldi þér uppi á skemmtanalífinu allt kvöldið og þú borgaðir "greiðann" með því að fara heim með þeim sama. Og það var a.m.k. þannig að sumir karlmenn urðu alveg brjál ef að stelpan sem þeir voru að gefa í glas þakkaði bara pent fyrir sig og fór.

Ég veit alveg hvað ég er að tala um, ég stundaði það að "veiða mér í glas" á tímabili - og er bara heppinn að hafa ekki lefnt í neinu vandræðum... gat bara fengið mitt glas og rölt í burtu, með fúla karlmenn standandi við barinn ;) Hitti stelpur ekki alls fyrir löngu á Fimm fiskum (local pöbb fyrir þá sem ekki vita) sem voru að biðja hinn og þennan um að gefa sér í glas. Ég benti þeim á að þær gætu aldrei vitað hvað sá sem gæfi þeim í glas ætlaðist til að fá fyrir það - sem og hvort að einhverju væri bætt út í glasið :!: Veit ekki hvort að ég sé bara orðin gömul og paranojuð (á góðri íslensku) :$ En þetta var á dönskum dögum þar sem kom svo upp að unglingsstelpa var nær dauða en lífi þegar hún innbyrti of mikið af eiturlyfjum, sem að mig minnir að ég hafi heyrt að hafi verið blandað út í drykk hjá henni eða eitthvað þvílíkt :|

En já aftur að þessarri grein. Í lok greinarinnar segir: "Appel (sérfræðingur í danska velferðar- og jafnréttisráðuneytinu) segir kannanir sem gerðar hafa verið á Englandi sýna fram á að margar unglingsstúlkur telji kynlíf og klám vera aðgangsmiða í skemmtanageirann og því telji margar þeirra þetta vera leið á framabrautinni." Þetta er náttla bilun! En hei - okkurru að fara í framhalds- og háskólanám. Það má bara leggjast á bakið (eða á alla fjóra eða... eða..) og skjótast upp á stjörnuhimininn emjandi og stynjandi :haha: Nei þetta er bara nöts - ég ætla allaveganna að láta mína háskólagráðu duga - verð bara á stjörnuhimninum hjá mínum manni, það er meira en nóg fyrir mig 8)

 
Sumir fara sexy leiðina á stjörnuhimininn og ýmist sanna sig þar eða ekki.

En já... ætla ekki að hafa þetta lengra, fyrir þá sem að eru fúlir yfir að ég sé ekki að blogga um mig og mitt líf - þá ulla ég bara á ykkur, gerði það síðast og fékk ekkert komment :whut: Reyndar var það óttaleg "mont" færsla - en samt :$


» 4 hafa sagt sína skoðun

24.11.2008 10:34:30 / Una

Jesús Guð Dýrlingur!

Já gott fólk - hérna er smá auglýsing fyrir rokkóperuna Jesús Guð Dýrlingur sem er verið að setja upp í hólminum. Þar fer ég með hlutverk Heródesar ásamt að syngja bakraddir í flestum lögum. ;)


Sýningarnar hafa verið að ganga mjög vel, fengið frábærta dóma og hvet ég þá sem að hafa ekki skellt sér á showið að gera það!

Hérna má sjá eitthvað af þeirri umfjöllum sem sýningin hefur fengið:
Gagnrýni af leiklistarvefnum (birtist einnig í Stykkishólmspóstinum)
Gagnrýni úr Skessuhorni
Mynd af hljómsveitinni og stutt umfjöllun af vef mbl.is

Ef þú hefur skellt þér á showið - hvernig fannst þér?:d

» 0 hafa sagt sína skoðun

21.11.2008 09:05:37 / Una

Unga fólkið á þessu blessaða skeri.


Já já mikið rosalega er ég nú orðin gömul - farin að tala um þetta "unga fólk" :o En svona er þetta nú samt. Þegar ég var yngri var mér kennt að bera viðringu fyrir öðru fólki - og þá sérstaklega því sem eldra er. En samkvæmt fréttum um árásir í Breiðholti og í Reykjanesbæ - þá virðist þetta eitthvað vera á undanhaldi. :s

 En hvað hefur þá breyst svona svakalega er fólk bara að liðast í sundur andlega eða er langvarandi athyglis og agaleysi á börnum að koma í ljós? Ég veit ekki með ykkur hin, en ég hef tekið eftir taka eftir stigvaxandi virðingar og skeytingaleysi hjá unglingum í gegnum árin. Man t.d. þegar ég bjó á Selfossi 2002 (23ja ára) og það var unglingur að labba á gangstétt hinu megin við götuna sem kallaði einhvern óþverra orð að gamalli konu...alveg upp úr þurru. og nú í dag eru unglingar oft labbandi um "öskrandi eins og geðsjúklingar" eins og einn sem ég þekki orðaði það.:frown:

Á mínu heimili eru börnin ávítuð ef þau eru að tala við hvort annað af vanvirðingu - því þú átt ekki að tala svona við nokkurt fólk, hvort sem um er að ræða jafningja þinn, eða einhvern sem er þér minni eða meiri! Það þarf að innræta börnum virðingu fyrir sjálfum sér - og öðrum. Einn löngu látinn maður sagði eitthvað á þá leið að "það sem þú vilt að aðrir gjöri yður, það skuluð þið þeim og þér gjöra" - já hann Sússi var alveg með hlutina á hreinu þá, svo því er þetta eitthvað að vefjast fyrir fólki núna? :$

Ég velti því fyrir mér hvort fólk sé að láta börnin meira eða minna "sjá um sig sjálf" og ætlast svo til þess að skólinn ali börnin upp fyrir þau. Mér finnst þetta fáránlegt, en það má vel vera að þetta viðgangist. Það er nefnilega oft sem að það er bent á skólann - ekki foreldrana, ef börn eru til vandræða. Og það er alveg fáránlegt! Síðast þegar ég vissi var ekki allt flæðandi um af fjármagni og úrræðum til að siða til heilu árgangana í skólakerfinu. Þó svo að skólar eigi að halda upp aga, þá þurfa foreldrar að gera börnin móttækileg fyrir því heima fyrir. :whut:
 
Svo benda sumir á internetið, tölvuleiki og bíómyndir  - að þar liggi hundurinn grafinn. En mín skoðun er sú að en ef þú ert með börn í "lausagangi" þá geta þau tekið upp og leikið eftir það sem þau sjá í bíómyndum og töluvleikjum án þess að nokkur geri eitthvað í málinu. En ef að börnunum er kennt hvað sé raunverulegt og hvað ekki, sem og hvað sé ásættanleg hegðun og hvað ekki... þá á þetta ekki að vera vandamál. :|

Þó svo að ég sé svolítið að mála skrattann á veggin hérna þá er ég allt ekki að segja að öll börn séu upp til hópa agalausir vandræða seggir - en það eru svona einstaklingar inn á milli, sem geta svo því miður smitað út frá sér. :( En já... hvað finnst þér um þetta - er ég alveg að blása allt úr samhengi og gera úlfalda úr mýflugu? Eða er eitthvað til í þessu hjá mér???

Ég bara spyr....:|


» 5 hafa sagt sína skoðun

18.09.2008 11:36:46 / Una

Mig langar líka í svona laun!



Af hverju fá þingmenn, ráðherrar og svoleiðis lið bara nefnd sem ákveður laun þeirra, án þess að þurfa að setjast að samningaborði eins og við hin. Kíkiði á þessa frétt. Þarna segir m.a. eftirfarandi: "...þingfararkaup er nú rúmar 562 þúsund krónur, ráðherralaun 992 þúsund krónur að undanskildum forsætisráðherra sem er með tæpa 1,1 milljón í mánaðarlaun. Forseti Íslands fær eftir breytingarnar um 1.830 þúsund krónur í laun á mánuði."

Og á sama tíma eru grunnlaun menntaðra lífeindafræðinga LSH ekki einu sinni upp í 200 þúsund kallinn, ekki frekar en hjá leikskólakennurum eða öðrum stéttum.... fáránlegt...:evil:

Já you guessed it... ég er ekki rík þessa dagana... and I don't like it :cry:

» 2 hafa sagt sína skoðun

16.09.2008 14:12:42 / Una

Foreldrar sektaðir fyrir skemmdarverk barnanna.

Ó já hvað mér finnst þetta vera málið. Komið nóg af því að fólk ætlist bara til þess að ríki og bær ali upp börnin þeirra og fari sjálft að hugsa um aga og mótun sinna barna. Þetta er allaveganna að virka í Noregi.
Þó svo að þetta sé nú ekki að hafa mikið að segja hérna fyrir vestan - en hver veit hvað framtíðin ber í skauti sér. 8|

Svo er líka komin miðlunartillaga hjá ríki og ljósmæðrum - vona að það gangi eftir :d

Jæja... back to work.


» 0 hafa sagt sína skoðun

14.09.2008 22:50:38 / Una

Ég á ekki orð!

Fyrirgefiði hvað ég hef verið lengi fjarverandi. Ætla að skrifa síðar um mína hagi. En ég bara varð að benda ykkur á ótrúlegt mál sem var fjallað um í Vísi í kvöld. Ég er ekki að grínast þegar ég segi að þetta er ekki fyrir litlar eða viðkvæmar sálir. Ef þú vilt vita meira, þá er upprunalega greinin hérna.

Ég er hálf dofin inni í mér... meira síðar...:|


» 3 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 10
Könnun
Hvernig lýst þér á nýárið?




Talning
Niðurtalningu lokið!
Fyrir 763 dögum
verð ég þrítug!
Leitarbox

Klukkan
lið úr hólminum
Skólafélagar úr FB
Nostalgía - gömul skrif