A sneak peak into my head

Little missys brain - virkar best í Firefox, IE er verkfæri djöfulsins!

28.11.2008 09:42:20 / Una

Búin að skreyta töluvert heima.

Jamms þegar svona árferðir er í gangi - þá er bara um að gera að skreyta snemma. Við erum komin með ljós fyrir utan og í nokkra glugga, kransinn er klár og farið er að setja jóla hitt og þetta um húsið. :p

Næsta ár ætlum við að færa út kvíarnar og gera eitthvað í líkingu við hér að neðan - enda ætti að vera komið bullandi góðæri þá aftur, ekki satt :haha:








Þetta hús er eeeendalaust sniðugt...Ef þú vilt skoða meira þá finnurðu það hérna. :p

Ég veit ekki með ykkur - en ég kemst bara í ágætis jólaskap við þetta :haha:
Helga Jenný skrifaði
gleðilegt jólaskap sæta, ég held ég takist á við jólin þegar prófin eru búin ;o)
Eva María skrifaði
hvað hefur kallinn ekki nægan tíma og kunnátu til að bjarga þessu fyrir jól
Sólbjört skrifaði
Hva maður er hvort sem er á hausnum núna það er bara spurning um að fara á hausinn með stæl hehe. En hvað er í gangi með allt þetta blogg er lítið að gera í vinnunni ? Þú ert orðin svo dugleg að blogga að maður nær ekki að fylgjast með hverri færslu. En haltu bara áfram á þessari braut gæskan alltaf gaman að fá ný blogg til að lesa
Una Kristín skrifaði
Hvurslags er þetta - ef maður bloggar ekki fær maður skammir í hattinn... ef maður bloggar fær maður líka skammir í hattinn. Hihi nei nei ég bara ákvað að taka upp gamlan sið og láta aðeins heyra frá mér aftur - og Sólbjört, ég er að reyna að fara ekki á hausinn. En ef að hausinn er að fara, þá verður skellt upp skrauti frá Hagkaup í tonnavís - á láni :D

Skrifa athugasemd:

Það er nauðsynlegt að fylla inn í reiti merkta með *

Protected by FormShield
Vinsamlega skrifaðu inn stafina 4 sem eru á myndinni hér fyrir ofan.

Athugaðu að IP talan þín () verður skráð með færslunni.

Könnun
Hvernig lýst þér á nýárið?




Talning
Niðurtalningu lokið!
Fyrir 83 dögum
verð ég þrítug!
Leitarbox

Klukkan
lið úr hólminum
Skólafélagar úr FB
Nostalgía - gömul skrif