18.12.2008 08:58:18 / Una
Snilldar hugsun foreldris.
Sá alveg
snilldar frétt á mbl í morgun um föður sem að refsaði syni sínum fyrir skemmdarverk með þeim hætti að stráksi mun svo sannarlega hugsa sig tvisvar um í framtíðinni


Hérna er fréttin af vef press-telegram þar sem er talað við þá feðga ásamt fólki af götunni sem varð vitni af þessu.
Ég veit ekki með ykkur - en mér finnst svona lagað í góðu lagi, hann þurfti s.s. að ganga um með þetta skilti í 5 tíma að mig minnir ásamt því að vinna í samfélagsþjónustu og eitthvað álíka. Stráksi var að hugsa um að vera með í gengi, en hann er hættur við - enda engin leið að vita hvaða afleiðingar það hefði haft fyrir hann

Börn eiga að læra að gjörðir þeirra hafa afleiðingar!

Svo var einnig á mbl,
frétt um mann sem hefði mátt kenna að sjá um gæludýr.... lyktin hlýtur að hafa verið orðin rosaleg! Mig hefur ekki langað til að eiga páfagauk hingað til - og eftir að hafa lesið þetta, þá langar mér það enn síður
