A sneak peak into my head

Little missys brain - virkar best í Firefox, IE er verkfæri djöfulsins!

18.02.2009 09:51:35 / Una

Stjörnuspáin mín í dag.

Í fréttaleitinni minni í dag rak ég augun í stjörnuspána mína. Fannst þetta vera ágætis speki og smelli henni því hérna upp.;)

"Steingeit: Þér finnst þú svöl félagsvera. Leggðu grunninn nú að breytingum á umhverfi þínu. Flýttu þér að læra að skilja í milli þess sem skiptir máli og hins, sem er hrein tímasóun."

Annars er það í fréttum að litla þvera og þrjóska ég er komin á facebook. Jábbs, ég er ekki lengur í hópi þess fólks sem lifir góðu lífi án facebook - þó svo að ég geti nú s.s. ekkert sagt að líf mitt hafi breyst eitthvað stórkostlega eftir skráningu.:$

Já svo mun fljótlega verða hérna í Stykkishólmi svona local Idol if you will á milli vinnustaða, kallað Söngvaseiður. Yours truly er skráð til þáttöku fyrir ráðhúsið :haha:. Nú er það bara að fara að ákveða lag og svona, æfingar byrja í næstu viku. Svo ef einhver er með tillögu þá eru þær vel þegarnar :). En jæja... ætla nú að fara að halda áfram að gera eitthvað í vinnunni.
góð kona skrifar skrifaði
Uppáhalds lagið mitt sem þú tekur er að sjálfsögðu, (veit ekki hvað það heitir) It got to beeeeeeee perfect.

Og annað, ég las einmitt stjörnuspána og ég hugsaði "mér finnst ég alveg svöl. líka þegar ég er ein. :)
Sólbjört skrifaði
Já já þá á ég eftir að vinna þig líka ekki bara Odd !!!!!!!! nei nei grín en ég er skráð fyrir leikskólann svo þetta verður 79 árgangurinn sem massar þetta hehe
Una Kristín skrifaði
Og Daði frændi í hljómsveitinni mar!
Teitur skrifaði
Hvernig er það... er aldrei bloggað á þessari síðu nema þegar ég röfla um eitthvað málefni og þú ert sammála? ;)
Una Kristín skrifaði
Svona er þetta víst orðið Teitur minn... the rövl just aint what it used tú bí...
Helga Jenný skrifaði
facebook hefur semsagt alveg tekið yfir tölvutíma þinn núna og bloggið laggst af ;)

Skrifa athugasemd:

Það er nauðsynlegt að fylla inn í reiti merkta með *

Protected by FormShield
Vinsamlega skrifaðu inn stafina 4 sem eru á myndinni hér fyrir ofan.

Athugaðu að IP talan þín () verður skráð með færslunni.

Könnun
Hvernig lýst þér á nýárið?




Talning
Niðurtalningu lokið!
Fyrir 45 dögum
verð ég þrítug!
Leitarbox

Klukkan
lið úr hólminum
Skólafélagar úr FB
Nostalgía - gömul skrif