well svona já...
En ég er allaveganna búin að fá lánaðan gítar hjá Davíð (takk elskan ) og er farin að glamra aðeins heima. Fann ágætis síðu sem gaf mér upp ýmiss grip og svo er það bara að reyna að finna eitthvað sem að er með góð lög og helst mynd af gripunum með - svo ég þurfi ekki alltaf að vera að fletta fram og til baka
En ef ÞÚ veist um góða síðu eða hefur tillögu á lagi sem er byrjendavænt... þá endilega láttu mig vita
» 2 hafa sagt sína skoðun
OMG hvað það er brjálað gott veður úti!
Jámms.. sólin og Magni eru sko bæði að standa sig svo vel að ekki má sjá á milli!
Þjóðernisstoltið rann sko um æðar mínar í gær þegar Magni var beðin um að taka aftur lagið - og hver svo sem mín skoðun hefur verið á honum áður fyrr þá þykir mér hann núna vera að vel að sínum stað kominn.
En jæja.. ætla nú að standa upp og reyna að gera eitthvað af viti í vinnunni... en annars er það bara Goooo Magni!
» 4 hafa sagt sína skoðun
Jámms... Sigurþór og Arna eru genging í það heilaga
Þetta var alveg æðisleg helgi fyrir austan, allir sögðu já á réttum stöðum, gleðitár féllu hingað og þangað, ég söng (ekki ein þó ). Þetta fór semsagt fram austur á landi, ekki svo langt frá Höfn í Hornafirði - þannig að maður prufaði sundlaugina þar, prufaði að gleyma sundfötunum þar líka, prufaði rúntinn, hafnarsjóppuna og svo má líka minnast á það að ríkið á staðnum er með mjööög góða þjónustu nokkrir strákana ætluðu að kaupa sér smá bjór á laugardeginum en þegar þeir fóru að spurjast fyrir um opnunartímann inni á Esso (þar sem ríkið er í sama húsnæði) þá komust þeir að því að ríkið er lokað á laugardögum en rekstaraðilarnir voru akkúrat á staðnum og fyrst þeir ætluðu ekki að kaupa það mikið þá var þeim bara hleypt inn og afgreiddir um það sem þeim vantaði - SNILLD
En já - ég fór austur með kvefskít og hann náði nánast að gera út af við mig á laugardeginum. En eftir dágóðan lúr og verkjatöflur var ég nokkuð góð og eftir að ég var búin að dúða mig í hengla var ég barasta stórfín
Ó já vá.. ég var næstum búin að gleyma snilldinni minni þessa vikuna... ég passaði mig náttla að loka öllum gluggum og taka allt úr sambandi og svona áður en ég færi - svona eins og góður húseigandi skal gjöra Nema hvað.. ég fæ þá snilldarhugmynd að slá bara út pleisinu - þannig gleymi ég engu well.. ég náttla gleymdi því að ísskápurinn og frystirinn þurfa rafmagn til að gegna sínu hlutverki en ég er þó allaveganna búin að afþýða og þrífa frystinn núna
En jæja... núna er jú mánudagur og enn ein vinnuvikan hafin - svo það er best að reyna að halda áfram að gera eitthvað
» 3 hafa sagt sína skoðun
» 21 hafa sagt sína skoðun