En í þetta skipti er um aðeins frábærari manneskju að ræða heldur
en í síðasta dálki
En já.. annars er ég bara þvílíkt busy þessa dagana, lagnirnar gáfu
sig í sameigninni (týpískt fyrst að það er nýlega búið að
teppaleggja og mála), þó svo að það hafi ekki verið minni íbúð að
kenna þá áttaði ég mig á því að sturtuklefinn minn var að leka

.
Maður lætur náttla ekki svona lagað viðgangast þannig að ég réðst
bara á kíttið með dúkahníf og fjarlægði óæskilega parta - og
helling af þeim! Þar á meðal var lag þar sem efst var kítti, svo
kom fúa, svo kom kítti og þar neðst var fúa, maður ætti kannski að
leigja baðherbergið út til iðnskólans sem sýnikennslu í hvernig
baðherbergi eiga ekki að vera

við erum að tala um að flísarnar
mínar eru OFANÁ dúknum

En já - svo er ég að fara að vinna í veislu frá 8 í kvöld til 4 í
fyrramálið! Og ég á enn eftir að klára skýrsluna mína sem ég þarf
að skila inn í fyrramálið - það lýtur allt út fyrir að ég þurfi að
klára hana þegar ég kem heim í nótt
En um helgina fer ég vestur í hólm - nýkomin þaðan, þetta er
algjört met

. Hann afi minn, Gústi P, hefði nebbla orðið 100 ára
í ár svo að niðjarnir ætla að hittast og fagna því svona smá

En jæja... kannski að ég fari að gera eitthvað að viti - eins og
þessa skýrslu eða eitthvað

En annars segi ég bara góða helgi elskurnar!