Í tilefni jólahátíðarinnar er hérna smá klassískt jólalag - með texta eftir your's truly

Bráðum koma blessuð jólin, Unu fer að hlakka til.
Hún er búi'n að klára prófin, og fer að fara' að taka til.
Taka til, taka til - hún fer að fara' að taka til.
Laufa brauð er búi'n að baka, hún gerði það að kvöldi til.
Börnin fengu' lengi' að vaka, sætindunum röðuðu' í sig.
Röðuðu' í sig, röðuðu' í sig - sætindunum röðuðu' í sig.
Jólakortin sendir engin, en á næsta ári sér hún til.
Hún þarf að fara' að sýna drengin, sem hún leggur lag sitt við.
Lag sitt við, lag sitt við - sem hún leggur lag sitt við.
Held að ég kalli þetta nóg í blili - kannski maður gefi bara út sinn eigin jóladisk á næsta ári, fari að herma eftir Siggeiri bróður. Smá vinaleg samkeppni innan fjölskyldunnar
En já, svo má ég til með að láta vita af því að kvartettinn Kolka (sem systa er í
mun verða í 10 fréttunum á RÚV í kvöld - sem og litli frændi líka, þar sem hann ákvað að vakna á meðan myndatökuliðið var í heimsókn
En fyrir þá sem misstu af tífréttunum (eins og ég
) þá má sjá kvartettinn hérna.
Jæja - kalla þetta bara nóg í bili, en vil að lokum biðja ykkur um að kíkja inn á síðuna hjá systu og skoða afrakstur laufabrauðsbakstursins og greiða atkvæði um hvaða laufabrauð þér finnst vera vænlegust til vinnings